
Á þessari mynd, sem tekin var laust fyrir hádegi 10. júlí 2006, sést austurhlið íbúðarhússins ásamt viðbyggingu og bílskúr. Á hólnum í baksýn stóð eldra hús, sem reist var á ofanverðri nítjándu öld og stóð þarna fram yfir miðja síðustu öld. Enn fjær sést nýslegið heimatúnið.