Arnarholt í Stafholtstungum er bújörð í Borgarfjarðarhéraði.  Fram til 1994 var þar stundaður hefðbundinn búskapur, en jörðin, er nú í eigu 16 fjölskyldna, sem stunda þar skógrækt, byggingu sumarhúsa og almenna útivist.  Á myndinni hér að ofan sést íbúðarhúsið ásamt útihúsum.  Jörðin er í næsta nágrenni þéttbýliskjarnans Varmalands og liggur að hluta til að Norðurá.  Vinstra megin á myndinni hér að ofan sér í þjóðveg 50, Borgarfjarðarbraut.  Arnarholt tilheyrði áður fyrr Stafholtstungnahreppi, sem nú er hluti sveitarfélagsins Borgarbyggðar.

Nokkur hluti þessa vefs er opinn öllum almenningi, en aðrir hlutar hans eru aðeins sýnilegir eftir innskráningu með lykilorði.

Fréttir

22.03.2012
Eftirfarandi skjöl vistuð í skjalasafni:

1) Ársskýrsla 2011
2) Fundargerð 5. sjtórnar- fundar 07.03.2012
3) Bréf Braga Jóhannessonar til Arnhyltinga 23.02.-18.03.2012

20.02.2012
Fundargerð aðalfundar Veiðifélags Norðurár 2011 og félagsfundar 06.10.2011 hafa verið vistaðar í skjalasafni félagsins.

22.01.2012
Stjórnarfundur var haldinn 19.01.2012.  Fundargerð hefur verið vistuð í vefskjalasafni félagsins.

01.10.2011
Skjalasafninu hefur borist yfirlit frá Brynjólfi Guðmundssyni um laxveiði í Norðurá 2001-2011.

Eldri fréttir...


Site Map | Printable View | © 2008 - 2012 Tölvar ehf | Powered by mojoPortal | XHTML 1.0 | CSS | Design by styleshout